Hvernig hefur Guð ætlað þér að lifa?
-efni fyrir biblíufræðslu
Hvers vegna skapaði Guð þig? Hvernig hefur Hann ætlað þér að lifa? Hvaða tilgang hefur Hann fyrir líf þitt? Í þessum ókeypis Biblíulestrum muntu kanna lykilhugmyndir Biblíunnar og öðlast gagnleg ráð sem munu hjálpa þér að lifa þýðingamiklu lífi með Guði.
Lestrunum er skipt í fimm meginþemu. Þeir hefjast á hluta þar sem farið er yfir helstu undirstöðuatriði sem hjálpa þér að skilja heildarmyndina varðandi það sem Guð er að gera í heiminum og vill gera í þínu lífi.
Í fyrsta lagi munum við skoða hvað það merkir að vera móttækileg fyrir Guði því að án þess er ómögulegt að eiga samband við Hann. Í öðru lagi munum við skoða dýpkun trúar vegna þess að traust er þungamiðja allra sambanda, sérstaklega sambands við Guð. Í þriðja lagi munum við skoða það að lifa fyrir guðlegan mátt. Í þessum hluta muntu kanna leyndardóm þess að reiða þig á yfirnáttúrulegan mátt Guðs frekar en að reiða þig á það besta sem þú getur áorkað á eigin spýtur. Að lokum muntu kanna hvernig þú getur persónulega sameinast Guði í því sem Hann er að gera í heiminum.
Þú getur halað niður öllu lesefninu í einu eða einum hluta í einu. Ef þig vantar frekari upplýsingar eða útprentað eintak máttu endilega hafa samband: sda@adventistar.is.
Ég óska þér alls hins besta á þessu ferðalagi!
Gavin Anthony
Skoða efnið kafla fyrir kafla
Þessi hluti Biblíulestranna eru leiðbeiningar um það hvernig eigi að nota bókina. Áður en þú lest nokkuð annað skaltu fyrst lesa „Hvert er stefnt?“ vegna þess að sá kafli mun veita þér innsýn í hvert stefnir með þessum Biblíulestrum. Sá kafli inniheldur eftirfarandi upplýsingar:
—hvert er stefnt?
—hvernig nota á bókina
—yfirlit hluta
—leiðbeiningar handa kennurum
—helstu trúarkenningar
—skírnarheitið–yfirlit
—helgidómurinn og lærisveinar
Stundum er gott að byrja á því að líta á heildarmyndina. Ég mæli með því að ljúka þessum hluta áður en þú byrjar að skoða hinar lexíurnar.Í þessum hluta muntu kanna heildarmyndina varðandi það sem Guð er að gera í heiminum okkar og hvernig þú passar inn í áform Guðs.
1. allt er viðbrögð við kærleika
2. sköpun mín var til dýrðar Guði
3. Guð skapaði mig í sinni mynd
4. vandi okkar allra
5. hvernig áform Guðs kemst í samt lag
6. hvers vegna að fylgja áformi Guðs?
7. hversu mikið er hægt að breytast?
8. geimárás á hönnun Guðs
9. leiðsögukort fyrir ferð þína
10. okkur er ekki ætlað að ferðast ein
11. endurreisnarferlið
12. hjartavandamál
Andlega ganga þín hefst á vaxandi móttækileika þínum fyrir Guði. Eftir því sem þú opnar huga þinn og hjarta fyrir Guði mun Guð svara þér. Þessar lexíur kanna mismunandi leiðir til þess að opna sig fyrir Guði.
13. biblíunni lokið upp
14. biblían heimfærð upp á líf mitt
15. að nota andlega dagbók
16. lifað í nærveru Guðs
17. lesið til að heyra Guð tala
18. fyrirgefningin meðtekin
19. að njóta orða Guðs
20. um hvað á að biðja?
21. að læra Biblíugreinar utan að
22. að heyra rödd Guðs í hávaðanum
23. opin fyrir þrenningunni
24. hvers vegna tilbeiðsla?
25. að þrá Guð sjálfan
26. í miðju alheimsstríði
Hjarta sem er opið fyrir Guði gerir það mögulegt að traust gagnvart Guði geti myndast. Þessar lexíur kanna hvernig þú getur aukið trú þína á því hver Guð er og það sem Guð hefur sagt.
27. beðið með Biblíunni
28. hvernig Guð tekur á syndinni
29. það sem Jesús hefur gert fyrir mig
30. glímt við erfiðleika
31. lifað samkvæmt forsjón Guðs
32. trúað á sköpunina
33. hvað gerist þegar ég dey?
34. Guð í fyrsta sæti
35. hvers vegna að taka skírn?
36. mun fólk kveljast eilíflega í helvíti?
37. lærum að tjá lofgjörð
38. endurkoma Jesú
39. kristin sjálfsmynd mín
40. kynlíf og hjónaband
Eftir því sem hjarta þitt opnast og trú þín á Guð festir rætur í lífi þínu muntu læra að treysta Guði fyrir öllu sem þú hefur og öllu sem þú ert. Eftir því sem þú lærir að gefast Guði algjörlega mun Guð fylla líf þitt af Heilögum anda í sívaxandi mæli. Þá mun líf þitt opinbera sönnun yfirnáttúrulegs mátts.
41. skref 1—ég dey syndugu eðli mínu
42. skref 2—fyllt Heilögum anda
43. að gefast vilja Guðs
44. auðmjúk játning
45. kvöldmáltíðin: Jesús var undirgefinn
46. undirgefni og hlýðni við lögmál Guðs
47. líkami minn undirgefinn Guði—1
48. líkami minn undirgefinn Guði—2
49. endurreisn fyrir auðmýkt
50. mótuð af biblíulegum meginreglum 51. gefumst til að öðlast hreinleika
52. deyjum sjálfinu— venjum og erfiði
53. beðið um fyllingu
54. fyllt með daglegri guðrækni
Þegar kraftur Heilags anda vinnur í lífi þínu muntu geta sameinast Guði í því starfi sem Hann vinnur í heiminum. Þessar lexíur snúast allar um það hvernig þú getur tekið þátt í verki Guðs í ríki Hans.
55. hlutverk kirkjunnarað
56. ferð Jesú til að ná til heimsins
57. þrjú grunnatriði boðunar
58. hvernig Guð undirbýr okkur
59. hvar finn ég minn vettvang til að þjóna?
60. tíund og ráðsmennska
61. endir veraldar
62. beðið fyrir öðrum
63. að deila vitnisburði með öðrum
64. að þjóna eins og Jesús
65. ævintýri í þjónustu
66. að vera trúverðugur
67. spádómsboðskapur til að deila með öðrum
68. hvíldardagurinn